Hafréttarstofnun Íslands og Sjávarklasinn efna til örnámskeiðs í hafrétti fyrir almenning í Húsi Sjávarklasans, Grandagarði 16, Reykjavík, föstudaginn 7. október nk. kl. 9-12.

Þór Sigfússon setur námskeiðið, en kennsla er í höndum Tómasar H. Heiðar, Birgis Hrafns Búasonar og Snjólaugar Árnadóttur. Þátttakendur eru beðnir að skrá sig á netfangið sjavarklasinn@sjavarklasinn.is eða í síma 577 6200. Skráningargjald, kr. 1.000, greiðist á námskeiðinu. Boðið er upp á kaffiveitingar í hléi.

Image