Um stofnunina

Hafréttarstofnun Íslands er rannsókna- og fræðslustofnun á sviði hafréttar við Háskóla Íslands. Meginmarkmið stofnunarinnar er að treysta þekkingu á réttarreglum á sviði hafréttar. 

Stofnuninni var komið á fót árið 1999, en að henni standa, auk Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytið og matvælaráðuneytið.

Forstöðumaður stofnunarinnar í hlutastarfi er Tómas H. Heiðar sem jafnframt er dómari við Alþjóðlega hafréttardóminn. 

 

Stjórn

Stjórn Hafréttarstofnunar skipa:

  • Aðalheiður Jóhannsdóttir, sem er formaður stjórnar, og Kári Hólmar Ragnarsson af hálfu Háskóla Íslands.
  • Anna Jóhannsdóttir og Birgir Hrafn Búason af hálfu utanríkisráðuneytisins.
  • Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir og Agnar Bragi Bragason af hálfu matvælaráðuneytisins.

Samningur um Hafréttarstofnun Íslands.